20. maí 2025
20. maí 2025
Varað við auglýsingu um gám til sölu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við söluauglýsingu á gámi sem er á fjölda sölusíðna inn á Facebook.

Þar á meðal inni á hópunum:
Húsgögn til sölu – Furniture for sale
Sunnlendingar með til sölu eða gefins
Bílaendursalan Ódýrir bílar til sölu 0 til 500 þúsund
Dekkjamarkaðurinn
Lottan Akureyri – Vörur til sölu
Þjónusta við íbúa Suðurnesja
Gámurinn er sagður vera 20 feta og einangraður, söluverðið nemur kr. 300.000 m/vsk. og afhendingu.
Söluaðili sendir kaupanda reikning frá fyrirtæki sem er málinu óviðkomandi og setur bankaupplýsingar einstaklings sem móttekur fjármunina inn á sölureikninginn. Gámurinn er svo í framhaldinu ekki afhentur kaupanda.
Lögregla hefur þegar móttekið 5 mál síðustu vikuna þar sem fjármunir kaupanda hafa tapast.