5. júní 2026
5. júní 2026
Úthlutun úr Þróunarsjóði námsgagna 2026
Þróunarsjóður námsgagna hefur úthlutað 82 m.kr. til 24 verkefna. Sjóðurinn styður við nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla með það að markmiði að tryggja aukið framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.

Áherslusvið sjóðsins árið 2026 voru:
Námsefni sem styður við íslenskukennslu eða STEM greinar
Námsefni sem hvetur til skapandi kennslu og gefið er út á fjölbreyttu formi
Námsefni fyrir iðn- og starfsnám
Námsefni í tengslum við gervigreind og hvernig nýta má gervigreind í skólastarfi
Námsefni sem umsækjendur geta rökstutt að mikill skortur sé á.
Sjóðnum bárust 125 umsóknir í ár og sótt var um rúmlega 385 m.kr. Umsóknir voru fleiri en fyrri ár og gæði þeirra jukust milli ára. Hámarksviðmið þróunarstyrks var hækkað úr 2 í 3 milljónir króna og úr 4 í 6 milljónir króna fyrir þróunar- og útgáfustyrk sem var raunvirðishækkun þar sem styrkupphæð hafði haldist óbreytt í fjölda ára. Þessi breyting ásamt því að fjármagn til úthlutunar lækkar milli ára leiddi til þess að færri verkefni fá styrk í ár í samanburði við fyrri ár.
Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit styrktra verkefna úr Þróunarsjóði námsgagna frá árinu 2013. Frá og með árinu 2023 birtist einnig stutt lýsing fyrir hvert verkefni (ef númer verkefnis er valið í töflu) og frá og með árinu 2024 kemur stutt lýsing á niðurstöðu verkefnis eftir að lokaskýrslu er skilað.
Sjóðurinn heyrir undir mennta- og barnamálaáðuneytið.
Eftirfarandi 24 verkefni hlutu styrk árið 2026:
1 Bergmann Guðmundsson (2.900.000 kr.)
Orðagreining
Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, efsta stig
Þjálfar nemendur í að greina íslensk orð með gagnvirku vefnámsefni sem styður sjálfstætt nám og betri skilning á málfræði.
2 Björk Bryngeirsdóttir og Rasmus Steenberg Christiansen (2.500.000 kr.)
Danska – námsefni fyrir 10. bekk: Skoleliv
Erlend tungumál fyrir grunnskóla, efsta stig
Þróar sveigjanlegt námsefni í dönsku sem tengir tungumálanám við daglegt líf ungmenna og eykur þátttöku og sjálfstraust.
3 Forlagið ehf. (1.800.000 kr.)
VÍSINDALÆSI - Sólmyrkvar. Sjöunda bókin í léttlestrarbókaflokki um vísindi.
Náttúrufræðigreinar fyrir grunnskóla, miðstig
Kynnir sólmyrkva á aðgengilegan hátt í léttlestrarbók sem vekur áhuga á vísindum og tengir við raunverulega atburði.
4 Friðrik Óli Atlason (2.970.000 kr.)
Rökrásir og Iðnsmíði — opinn kennsluvefur um forritun iðntölva
Verk- og starfsnám fyrir framhaldsskóla
Þróar opinn kennsluvef þar sem nemendur læra forritun iðntölva með því að prófa, smíða og herma eigin lausnir.
5 Gasverk ehf. (3.000.000 kr.)
Dýrin okkar, táknmálsbók
Íslenska og tjáning fyrir leikskóla
Kennslugögn sem efla læsi og samskipti á íslensku táknmáli fyrir heyrnarskert og heyrnarlaus leikskólabörn.
6 Hans Rúnar Snorrason (2.500.000 kr.)
velritun.is – Gagnvirkur kennsluvefur í fingrasetningu
Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, miðstig
Ókeypis kennsluvefur sem þjálfar fingrasetningu og vélritun á íslensku lyklaborði.
7 Heiðrún Villa Ingudóttir (6.000.000 kr.)
Þróun og útgáfa námsefnis Gæðastundar
Íslenska og tjáning fyrir leikskóla
Kennslugögn sem efla tilfinningalæsi og tjáningu ungra barna með leik, samtali og þátttöku. Efnið styður sjálfsvitund og félagsfærni og skapar rými fyrir börn til að þekkja og orða eigin líðan og líðan annarra.
8 Hildur Björnsdóttir (2.000.000 kr.)
„Tölum saman – Tvítyngd samræðuspjöld fyrir unglingastig (íslenska–spænska)”
Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, efsta stig
Þróar tvítyngd samræðuspjöld sem styðja nemendur með spænsku sem móðurmál í að efla orðaforða, samskipti og þátttöku í íslensku skólaumhverfi.
9 IÐNMENNT ses. (6.000.000 kr.)
Töflubók fyrir málm- og véltækni
Verk- og starfsnám fyrir framhaldsskóla
Þýðing og staðfærsla á nýrri Töflubók fyrir málm- og véltæknibrautir.
10 IÐNMENNT ses. (4.000.000 kr.)
Stýringar og tæknibúnaður
Verk- og starfsnám fyrir framhaldsskóla
Námsefni um stýringar og tæknibúnað sem eflir skilning á hönnun og virkni lagnakerfa.
11 IÐNMENNT ses. (4.000.000 kr.)
Stærðfræði 4 – frumsamið námsefni fyrir lokaáfanga í stærðfræði á framhaldsskólastigi
Stærðfræði fyrir framhaldsskóla
Byggir á frumsömdu námsefni sem hefur verið þróað og prófað á undanförnum árum.
12 Ingibjörg V Kaldalóns (5.500.000 kr.)
Samkennd í samfélaginu: Félags, tilfinninga og siðferðisnám
Samfélagsgreinar fyrir grunnskóla, efsta stig
Þýðir og aðlagar alþjóðlegt námsefni sem eflir samkennd, félagsfærni og siðferðisvitund nemenda. Verkefnið styður kennara og nemendur í að byggja upp jákvæð samskipti og styrkir velferð og öryggi í skólastarfi.
13 Karítas Hrundar Pálsdóttir (3.000.000 kr.)
Íslenskar og pólskar tvímála sögur á einföldu máli
Íslenska og tjáning fyrir framhaldsskóla
Tvímála sögur á íslensku og pólsku sem styðja tungumála- og menningarlæsi og styðja við inngildingu pólskumælandi nemenda.
14 Ketill Heiðar Guðmundsson (2.010.000 kr.)
Gagnvirkar sýndartilraunastofur í eðlis- og efnafræði
Náttúrufræðigreinar fyrir framhaldsskóla
Þróar gagnvirkt námsefni sem tengir eðlis- og efnafræði við íslenskt atvinnulíf og raunveruleg viðfangsefni.
15 Kolbrún Halldórsdóttir (1.950.000 kr.)
Áfram íslenska: Laxdæla saga
Íslenska og tjáning fyrir framhaldsskóla
Gagnvirkt námsefni sem gerir Laxdælu sögu aðgengilega og styður lesskilning og orðaforða.
16 Kristian Guttesen (5.500.000 kr.)
Tækniseigla: Þverfaglegt vandamálamiðað námsefni í gervigreind fyrir framhaldsskóla
Tölvufræði og upplýsingatækni fyrir framhaldsskóla
Þverfaglegt námsefni um gervigreind sem eflir gagnrýna hugsun og ábyrga notkun tækni.
17 Pappírsbátur, félagasamtök (3.000.000 kr.)
Lesum Saman: Þróun og útgáfa stafræns og prentaðs námsefnis fyrir lestur, íslensku sem annað mál og inngildandi málþroska í grunnskóla
Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, miðstig
Námsefni sem styður lestur og tjáningu með jafningjalærdómi og aðgengilegum textum.
18 Ragnar Þór Pétursson (3.000.000 kr.)
Hagnýt verkefni um gervigreind fyrir unglinga
Tölvufræði og upplýsingatækni fyrir grunnskóla, efsta stig
Safn verkefna og kennsluhugmynda sem tengjast tæknilegum, samfélagslegum og siðferðislegum hliðum gervigreindar.
19 RATA ehf. (4.000.000 kr.)
Hugmyndasmiðir - Nýsköpun í skólastarfi
Verk- og starfsnám fyrir grunnskóla, miðstig
Námsefni í nýsköpun með myndböndum, verkefnum og verkstæðum sem styðja hugmyndavinnu og lausnaleit.
20 Sigurður Fjalar Jónsson (3.000.000 kr.)
Stafræn lífsleikni á starfsbrautum
Tölvufræði og upplýsingatækni fyrir framhaldsskóla
Nemendamiðað, verklegt, fjölbreytt og sveigjanlegt námsefni þar sem markmiðið er að kenna nemendum á starfs- og sérnámsbrautum framhaldskólanna stafræna lífsleikni.
21 SM13 ehf. (2.550.000 kr.)
Rafmagn í daglegu lífi – bók og verkefni fyrir yngsta stig
Náttúrufræðigreinar fyrir grunnskóla, yngsta stig
Námsefni sem kynnir rafmagn með skapandi verkefnum og eflir tæknilæsi og skilning barna.
22 Undralingur ehf. (3.000.000 kr.)
Viðbótarþjálfun lestrarbóka Undralings
Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, yngsta stig
Miðar að því að efla læsi og málvitund barna með markvissri, stigskiptri lestrarþjálfun í tengslum við lifandi lestrarbækur.
23 Þórður Kristinsson (3.000.000 kr.)
Fjölmiðlalæsi á tímum samfélagsmiðla og gervigreindar
Samfélagsgreinar fyrir grunnskóla, efsta stig
Þróar námsefni sem eflir fjölmiðlalæsi og gagnrýna hugsun í stafrænum heimi.
24 Þórunn Rakel Gylfadóttir (5.000.000 kr.)
Segðu Eyjafjallajökull!
Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, efsta stig
Námsefni sem styður málleikni og skapandi tjáningu. Efnið byggir á reynslu ungs innflytjanda og eflir skilning, tungumálafærni og tengingu við fjölbreyttan bakgrunn nemenda.