27. maí 2026
27. maí 2026
Úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna
Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna fyrir árið 2026 en umsóknarfrestur rann út 16. mars síðastliðinn.

Veittir voru styrkir til 15 sjálfstætt starfandi fræðimanna til metnaðarfullra verkefna sem spanna vítt svið. Starfslaun sjóðsins í ár eru 580.000 kr. á mánuði (um verktakagreiðslur er að ræða). Veittar voru rúmar 45 milljónir líkt og síðastliðið ár, samsvarar það 78 mánuðum með tilliti til hækkunar á mánaðargreiðslu milli ára sem nemur 20.000 krónum.
Alls bárust 50 gildar umsóknir í sjóðinn og hlutfall styrktra verkefna því 30%. Sótt var um starfslaun til 408 mánaða eða rúmar 236 milljóna kr. Þurfti stjórn því að hafna mörgum styrkhæfum verkefnum.
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna, sem heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, hefur það meginhlutverk að launa starfsemi þeirra fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein. Rétt til að sækja um starfslaun úr sjóðnum hafa höfundar fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi. Styrkflokkar eru fjórir; starfslaun til þriggja, sex, níu eða tólf mánaða.
Umsækjandi | Verkefni | Mánuðir |
Anna María Bogadóttir | Íbúðir og endurnýting bygginga | 6 |
Bjarni M. Bjarnason | Sjóvota draumskáldið | 6 |
Clarence Edvin Glad | Ævisaga Sveinbjarnar Egilssonar 1791-1852 | 3 |
Guðrún Kristinsdóttir | Íslensk framúrstefnuleikritun 1960-1990 | 6 |
Guðrún Sif Friðriksdóttir | Friðaraktívismi á Íslandi | 6 |
Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson | Vanar og vanþekking | 6 |
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir | Sódómítar og sómaborgarar. Hinsegin saga á Íslandi | 6 |
Hrafnkell Freyr Lárusson | Fyrir opnum tjöldum: Alþingiskosningar 1874-1903 | 3 |
Kristborg Þórsdóttir | Forn fjós á Íslandi | 3 |
Margrét Gunnarsdóttir | Móðuharðindin í mannlegu ljósi | 6 |
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir | Varðveisla Grindavíkurhúsa | 9 |
Sigríður Matthíasdóttir | Athafnakonur á Íslandi. Hvað er hægt að vita? | 6 |
Sigrún Alba Sigurðardóttir | Börn, umhyggja og jarðnesk tengsl | 6 |
Sigrún Hannesdóttir | Jarðfundið skart á Íslandi frá um 1200 til 1800 | 3 |
Sólveig Guðmundsdóttir Beck | Myllur og magamál íslenskra bændaheimila | 3 |
Alls | 78 |
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.