Fara beint í efnið

22. apríl 2026

Úthlutun styrkja úr Innviðasjóði árið 2026

Stjórn Innviðasjóðs hefur samþykkt tillögu fagráðs um úthlutun ársins 2026 til tíu verkefna en heildarupphæð styrkja nemur tæplega 423 milljónum króna.

Alls bárust Innviðasjóði 24 umsóknir og þar af voru 22 gildar umsóknir sem voru metnar af fagráði. Af þeim voru tíu þeirra styrktar eða um 45% umsókna. Heildarkostnaður innviða sem sótt var um og metinn af fagráði er 1.522.194.675 kr. Sótt var um 73,3% af þeim kostnaði til sjóðsins, eða 1.117.491.912 kr., en 422.714.036 kr. voru veittar eða 38% umbeðinnar upphæðar.

Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna með fjármögnun tækjabúnaðar/aðstöðu sem ekki er aðgengileg nú þegar. Innviðasjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Innviðir á vegvísi

Alls bárust átta umsóknir um styrki til vegvísa og voru átta styrktar. Heildarkostnaður Innviða á vegvísi var 1.252.636.766 kr. og sótt var um til sjóðsins 922.880.343 kr. en 399.854.342 kr. voru veittar eða 43,3% af umbeðinni upphæð. Hlutfall vegvísastyrkja af úthlutun Innviðasjóðs er 94,6% af úthlutaðri upphæð.

Tækjakaupastyrkir

Alls bárust átta umsóknir um styrki til tækjakaupa og var ein umsókn styrkt. Heildarkostnaður umsókna var 123.155.335 kr. og sótt var um til sjóðsins 90.552.928 kr. en 10.168.451 kr. voru veittar eða 11,3% af umbeðinni upphæð. Hlutfall tækjakaupastyrkja af úthlutun Innviðasjóðs er 2,4% af úthlutaðri upphæð.

Uppbyggingarstyrkir

Alls bárust fjórar umsóknir um uppbyggingarstyrki og var ein umsókn styrkt. Heildarkostnaður umsókna var 131.519.090 kr. og sótt var um til sjóðsins 92.896.028 kr. en 12.691.243 kr. voru veittar eða 13,6% af umbeðinni upphæð. Hlutfall tækjakaupastyrkja af úthlutun Innviðasjóðs er 3,0% af úthlutaðri upphæð.

Uppfærslu-/viðhaldsstyrkir

Alls barst ein umsókn um uppfærslu- og viðhaldsstyrk. Heildarkostnaður umsóknar var 27.773.442 kr og sótt var til sjóðsins 20.830.081 kr. Ekki var veittur styrkur úr þessum flokki.

Aðgengisstyrkir

Alls barst ein umsókn um aðgengisstyrk. Heildarkostnaður umsóknar var 4.031.700 kr. og sótt var til sjóðsins 3.023.775 kr. Ekki var veittur styrkur úr þessum flokki.

Listi yfir úthlutun úr Innviðasjóði 2026*

Nánari greining á umsóknum og styrkjum verður birt á vefsíðu Innviðasjóðs á næstunni.

Innviðir á vegvísi

Stofnun

Forsvarsmaður

Heiti

Veitt í kr.

Háskóli Íslands

Guðmundur H Kjærnested

IREI –Empowering Science with Secure Infrastructure

64.227.201

Háskóli Íslands - Hugvísindasvið

Ólöf Garðarsdóttir

Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista

45.053.030

Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Unnar Bjarni Arnalds

Efnisvísinda- og efnisverkfræðisetur

28.229.312

Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið

Erna Magnúsdóttir

SAMSNIÐ – From molecules to precision medicine

59.798.090

Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið

Óttar Rolfsson

Efnagreining 2025 - frá samsætum til sameinda (EFNGREIN)

80.033.464

Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið

Sigrún Ólafsdóttir

Samfélagsgrunnar: Rannsóknainnviðir til öflugra samfélags

50.119.598

Stofnun Rannsóknasetra Háskóla Íslands

Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir

Marine Open Observation Network (MOON)

34.987.514

Veðurstofa Íslands

Ríkey Júlíusdóttir

EPOS Ísland

37.406.133

Tækjakaupastyrkir

Stofnun

Forsvarsmaður

Heiti

Veitt í kr.

Háskólinn í Reykjavík

Ármann Gylfason

Particle image velocimetry system for a multi-purpose wind-tunnel facility

10.168.451

Uppbyggingarstyrkir

Stofnun

Forsvarsmaður

Heiti

Veitt í kr.

Háskóli Íslands

Jón Emil Guðmundsson

Sérhannaður kælibúnaður fyrir geimvísindi

12.691.243

*Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.