29. ágúst 2024
29. ágúst 2024
Úthlutun aflamarks fyrir fiskveiðiárið 2024/2025
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki á fiskveiðiskip fyrir fiskveiðiárið 2024/2025.
Aflamarki var úthlutað á 344 skip í eigu 274 aðila. Heildarúthlutun er tæp 320 þúsund þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er tæp 168 þúsund þorskígildistonn en var tæp 166 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 38 þúsund þorskígildistonn og lækkar um 16 þúsund þorskígildistonn milli ára, en þá lækkun má rekja til þess að þorskígildisstuðull ýsu lækkaði úr 0,93 í 0,64 á milli ára.
Fyrirtæki með hæstu úthlutunina:
Brim hf. 9,55%
Samherji Ísland hf. 8,72%
Ísfélag hf. 6,98%
Fisk Seafood ehf. 6,10%
Þorbjörn hf. 5,43%
Skip með hæstu úthlutunina:
Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 10.305 þorskígildistonn
Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 10.006 þorskígildistonn
Drangey SK 2 (2893), FISK-Seafood ehf. með 6.786 þorskígildistonn
Af leyfðum heildarafla eru dregin frá 5,3% sem skiptast með eftirfarandi hætti:
Skel og rækjubætur 1.993 tonn
Byggðakvóti til fiskiskipa 5.645 tonn
Byggðakvóti Byggðastofnunar 6.302 tonn
Frístundaveiðar 200 tonn
Strandveiðar 11.100 tonn
Línuívílnun 1.835 tonn
Nýliðun vegna grásleppu 65 tonn
Úthlutun skel- og rækjubóta hefur þegar farið fram.
Nánari upplýsingar um úthlutunina er að finna í reglugerð, á gagnasíðum Fiskistofu og í samantekt fiskveiðiáramóta.
Tilkynningar um úthlutanir hafa verið sendar í stafrænt pósthólf útgerða á island.is.