Fara beint í efnið

17. maí 2021

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar laugardaginn 5. júní 2021.

Sameining Skútustaðarhrepps og Þingeyjarsveitar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á skrifstofum embættisins á afgreiðslutíma, mánudaga til fimmtudaga 9:00 - 15:00 og föstudaga kl. 9:00 - 14:00, á

  • Akureyri, Hafnarstræti 107

  • Húsavík, Útgarði 1

  • Siglufirði, Gránugötu 6

  • Þórshöfn, Fjarðarvegi 3

Atkvæðagreiðsla fer einnig fram hjá kjörstjórum sýslumanns sem hér segir:

  • Skútustaðahreppur: Hlíðarvegi 6, Reykjahlíð, og

  • Þingeyjarsveit: Kjarna, Laugum í Reykjadal:

Þriðjudaginn 25. maí frá kl. 10:00 – 15:00
Miðvikudaginn 26. maí frá kl. 10:00 – 15:00
Þriðjudaginn 1. júní frá kl. 10:00 – 15:00
Miðvikudaginn 2. júní frá kl. 10:00 – 15:00
Fimmtudaginn 3. júní frá kl. 10:00 – 15:00

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum mun fara fram í samráði við forstöðumenn þeirra og verður auglýst frekar innan viðkomandi stofnana.

Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublað eigi síðar en 1. júní 2021 kl. 16:00.

Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis.


Hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannsembættum landsins.