20. febrúar 2012
20. febrúar 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Úr umferðinni
Sem fyrr hafði lögreglan afskipti af fjölmörgum ökumönnum og ökutækjum um helgina. Þannig voru skráningarnúmer fjarlægð af rúmlega eitt hundrað ökutækjum víðsvegar í umdæminu en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð, og jafnvel hvorutveggja. Sömuleiðis var mikið um stöðubrot á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hafði líka afskipti af liðlega eitt hundrað ökutækjum vegna þessa.
Þá stöðvaði lögreglan allmarga ökumenn sem voru að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. Hinir sömu eiga 5.000 króna sekt yfir höfði sér en einn þeirra, karl á fertugsaldri, þarf væntanlega að borga gott betur en það. Sá gerðist nefnilega líka sekur um svigakstur, ranga akreinanotkun, vanræsku á merkjagjöf og akstur gegn rauðu ljósi. Ekki er alveg allt upptalið enn því þess má ennfremur geta að maðurinn notaði ekki bílbelti.