Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. janúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Úr umferðinni

Nokkuð var um árekstra á höfuðborgarsvæðinu í gær en lögreglu er ekki kunnugt um nein alvarleg meiðsli á fólki. Hálkan gerir mörgum erfitt fyrir og nú tekur lengri tíma en ella að komast á milli staða. Ökumenn þurfa því að gefa sér góðan tíma og umfram allt að aka varlega.

Einn ökumaður var tekinn fyrir fíkniefnaakstur í gær en sá var stöðvaður á Sæbraut um hádegisbilið. Þar var á ferð 18 ára piltur sem nú á yfir höfði sér sekt og ökuleyfissviptingu.

Lögreglan minnir ökumenn á að aka varlega.