17. desember 2013
17. desember 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Úr umferðinni
Ekki eru allir sem taka afskiptum lögreglu vel, eða skilja við hana sáttir. Þannig var því t.d. farið með ungan pilt, sem lögreglan stöðvaði í umferðinni í síðustu viku. Sá ók gegn rauðu ljósi á gatnamótum í borginni og því var för hans stöðvuð. Vettvangsskýrsla um málið var fyllt út í lögreglubílnum að piltinum viðstöddum, og fékk hann síðan afritið í hendur og hugðist halda sína leið. Afskiptum lögreglu var hins vegar ekki lokið því um leið og pilturinn fór út úr lögreglubílnum henti hann afritinu í götuna eins og hverju öðru rusli. Hann var því kallaður aftur í lögreglubifreiðina og bent á að með þessari háttsemi hefði hann brotið gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Við svo búið fór pilturinn loks af vettvangi, en hann á nú bæði yfir höfði sér sekt fyrir að aka gegn rauðu ljósi og einnig fyrir það að fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri, líkt og segir í 18. gr. áðurnefndrar lögreglusamþykktar. Sem betur fer heyra mál sem þessi til undantekninga enda eru samskipti lögreglu og borgaranna í langflestum tilvikum á mjög góðum nótum.