Fara beint í efnið

12. júní 2024

Upplýsingar um eftirstöðvar veiðiskyldu

Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um skip og sent á starfrænt pósthólf á Ísland.is til þeirra aðila sem eiga skip sem enn hafa ekki uppfyllt 50% veiðiskyldu af úthlutuðu aflamarki og aflamarki sem flutt var af fyrra ári.

viti

Skip sem fá úthlutað aflamark er skylt að veiða að lágmarki 50% af úthlutuðu aflamarki annars falla aflahlutdeildir skipsins niður. Hægt er að fá undanþágu frá veiðiskyldunni ef skip tefst frá veiðum í 4 mánuði eða meira vegna tjóns eða meiriháttar bilana.

Upplýsingar um veiðiskyldu skipa eru fundnar með því að fletta upp skipi í gegnum hnappinn skipaleit á vefsíðu Fiskistofu eða á gagnasíðum. Staða veiðiskyldu fyrir skipið sést þegar ýtt er á hnappinn aflamark.