Fara beint í efnið

28. maí 2024

Uppgjör vegna 2023 birt

Árlegur endurreikningur vegna lífeyrisgreiðslna frá TR vegna ársins 2023 liggur nú fyrir á Mínum síðum TR og á Ísland.is. Þau sem fengu of lágar greiðslur árið 2023 fá endurgreitt frá TR í sérstakri greiðslu 1. júní nk.

Uppgjör TR 2023
  • Um 14%, eða hátt í 10 þúsund einstaklingar eiga inneign. Miðgildi inneigna er rúmlega 73.000 kr.

  • Um 78% lífeyrisþega, eða rúmlega 52 þúsund einstaklingar, fengu ofgreitt og þurfa að endurgreiða í samræmi við það, frá og með 1. september nk. Miðgildi ofgreiðslna er rúmlega 122.000 kr.

Fjöldi þeirra sem fengu ofgreitt er svipaður milli ára, eða 78% árið 2023 miðað við 74% árið 2022. Ástæðurnar eru fyrst og fremst vegna verðbólgu- og vaxtastigs sem hefur haft mikil áhrif á lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur.

Af hverju stafar misræmið?

Greiðslur frá Tryggingastofnun byggja á tekjuáætlunum lífeyrisþega, þ.e. hvað þeir telja að þeir muni hafa í tekjur á komandi ári. Endurreikningurinn sem birtist nú byggir á tekjuupplýsingum úr staðfestum skattframtölum fyrir árið 2023. Þessi samanburður leiðir í ljós hvort lífeyrisþegi hafi fengið greitt í samræmi við réttindi sín, eða hvort frávik valdi því að um van – eða ofgreiðslu hafi verið að ræða á síðastliðnu ári. Eðlilegt er að frávik á greiðslum komi fram við endurreikning þar sem erfitt getur reynst að áætla tekjur fram í tímann.

TR leitar leiða til að draga úr misræmi

Þrátt fyrir að lífeyrisþegar beri ábyrgð á að tekjuskráning sé sem réttust þá er starfsfólk TR stöðugt að leita leiða til þess að draga úr því misræmi sem getur orðið á milli tekjuáætlunar og rauntekna. Þannig er sífellt unnið að betra upplýsingaflæði milli TR og lífeyrissjóða sem og við skattyfirvöld. Í vor var undirritað samkomulag við lífeyrissjóði um stafræna miðlun upplýsinga varðandi umsóknir til lífeyrissjóða. Sjá hér

TR hvetur lífeyrisþega til að breyta sem fyrst tekjuáætlun á Mínum síðum TR ef tekjur breytast. Einnig hefur TR sent lífeyrisþegum hvatningu um að breyta tekjuáætlunum ef að upplýsingar hafa borist um misræmi í tekjuáætlun og þeim tekjum sem aflað er. Með því að fylgjast vel með tekjuáætluninni er hægt að draga úr of- eða vangreiðslum.

TR hefur að auki kynnt sérstaklega greiðslufyrirkomulag þar sem viðkomandi fær eina greiðslu á ári, sem hentar vel þeim lífeyrisþegum sem eru að fá tiltölulega lágar greiðslur mánaðarlega.

Úrræði vegna niðurstöðu uppgjörs og innheimtu krafna

Almenna reglan er að kröfur beri að endurgreiða á 12 mánuðum en sérstaklega er bent á að ef það reynist íþyngjandi er ávallt hægt að hafa samband við TR og semja um greiðslur til lengri tíma. Nánari upplýsingar um úrræði vegna innheimtu má nálgast hér.

Ef lífeyrisþegi hefur athugasemdir við niðurstöðu endurreiknings er hægt að óska eftir rökstuðningi, andmæla niðurstöðunni eða hafa samband við Skattinn vegna skattbreytinga. Nánari upplýsingar um úrræðin má finna hér.

Rafrænar þjónustuleiðir

Lífeyrisþegar eru hvattir til að skoða bréf um niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs á Mínum síðum TR og að nýta sér rafrænar þjónustuleiðir við fyrirspurnir og önnur erindi. Einnig er hægt að skoða bréfið í pósthólfinu á Ísland.is. Næstu daga getur orðið töluvert álag á Mínum síðum TR sem getur valdið töfum á aðgengi og biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að valda. Við biðjum viðskiptavini að sýna biðlund. Við höfum fjölgað í símsvörun og sérstakt innval er vegna uppgjörsins í símaþjónustu sem er opin kl. 10.00 - 15.00 virka daga.

Algengum spurningum varðandi endurreikninginn fyrir árið 2023 er svarað á þjónustuvef TR Ísland.is.