9. nóvember 2022
9. nóvember 2022
Uppfærsla kjarnakerfa Fiskistofu
Fiskistofa er að uppfæra kerfi sín. Mælt er með að staðfesta viðvörun sem kemur upp eftir uppfærsluna.
Fiskistofa er að uppfæra kerfi sín næstkomandi fimmtudag þann 10.11.2022 kl. 12:00.
Þetta eru:
Kvótamillifærslur
GAFL
Nýja vorið
Veiðivottorð
Innflutt eftirlit
Nýtingarkerfið
Uppfærslan verður til þess að þegar notandi opnar kerfið upp á nýtt þá mun koma upp viðvörun sem mælt er með að notendur staðfesti.
Við mælum með að notendur endurræsi kerfin sem fyrst eftir uppfærslu eða í síðasta lagi 13.11.2022.
Annars er engin önnur breyting og við biðjumst velvirðingar á þessum smávægilegu óþægindum.