19. janúar 2024
19. janúar 2024
Uppfærsla á VOR kerfi Fiskistofu
Uppfærslan á VOR kerfinu fer fram mánudaginn 22. janúar á milli klukkan 10 og 11 og við mælumst til notendur vinni ekki í kerfinu á meðan.
Þessi uppfærsla felur í sér breytingu á skráningu ráðstöfunar þannig að ekki verður lengur hægt að velja ráðstöfun „Ísað í flug“. Þess i stað kemur „óunnið í flug“ eða „Unnið í flug“
Óunnið er valið þegar afurð er:
ísuð
blóðguð
óslægð
slægð
hausuð
Allt umfram óunnið telst afurð sem er til dæmis:
flökuð
flött
fryst
söltuð
hert
Breytingin gildir frá 1. janúar 2024.