Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2004

Þessi frétt er meira en árs gömul

Unnið samkvæmt stefnumörkun og markmiðssetningu 2004

Samkvæmt stefnumörkun og markmiðssetningu lögreglustjórans í Hafnarfirði fyrir árið 2004, skal með markvissum hætti stefnt að fækkun á umferðaróhöppum og slysum í umdæminu, með því að auka eftirlit á þeim vegarköflum, þar sem óhöpp eru hvað flest. Þá segir einnig að sérstakar aðgerðir lögreglu í umferðarmálum verði kynntar í fjölmiðlum áður en þær hefjast.

Nú hafa árhersluverkefni tímabilsins 18. mars til 18. apríl verið ákveðin. Sérstök áhersla verður lögð á eftirlit með hraðakstri og akstri á móti rauðu ljósi og mun lögreglan einkum beina eftirlitinu að Hafnarfjarðarvegi, Reykjavíkurvegi, Fjarðarhrauni og Reykjanesbraut frá Fjarðarhrauni og út úr bænum.

Einnig verður fylgst með vanrækslu á aðalskoðun, bílbeltanotkun ökumanns og farþega, svo og öryggisbúnaði barna. Réttindi ökumanna verða einnig könnuð með tilliti til aksturs réttindalausra.