Fara beint í efnið

9. ágúst 2024

Undirstöðunámskeið í skógfræði

Nokkur pláss eru laus á námskeiði hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands ætlað þeim sem vilja efla þekkingu sína á skógfræði. þetta er sjö vikna námskeið sem kennt er í fjarnámi með tveimur staðarlotum og verklegum tímum með skyldumætingu.

Skógfræði

Á námskeiðinu kynnast nemendur fagsviði og sögu skógræktar og landgræðslu á Íslandi. Fjallað er um hvað skógfræði er, stöðu skóga í heiminum í dag og sér í lagi á Íslandi.

Farið er yfir helstu markmið skógræktar, hverjir stunda skógrækt og helstu trjátegundir sem notaðar eru í skóg- og trjárækt hér á landi. Farið er yfir inngang að landgræðslufræðum og fjallað um vistfræði skóga og samanburður við náttúruskóga og skóglaust land og skógrækt sem mótvægisaðgerð í loftslagsmálum.

Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta gert grein fyrir stöðu skógamála hérlendis og í heiminum og vera með gott yfirlit yfir sögu skóga og skógræktar á Íslandi. Nemendur eiga að þekkja fagleg hugtök tengd skógfræði og landgræðslu, geta nefnt uppruna og eiginleika trjátegunda og greint helstu trjátegundir sem ræktaðar eru hérlendis. Jafnframt eiga nemendur að geta gert grein fyrir tengslum skógræktar við loftslagsmál.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og mætingarskylda í verklega kennslu sem eru tveir námskeiðsdagar. Í verklegri kennslu er farið í vettvangsferðir og fagaðilar heimsóttir. Fyrirlestrar eru aðgengilegir á Teams.

Verkefnavinna í námskeiði er metin 40% af lokaeinkunn, heimapróf 50% og tegundagreiningapróf 10%.

Námskeiðið er á BS-stigi og metið til fjögurra ECTS-eininga. Kennsla hefst mánudaginn 19. ágúst og lýkur fimmtudaginn 3. október. Stundaskrá og nánari upplýsingar má nálgast hér.

Kennarar eru Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir, brautarstjóri í skógfræði og aðjúnkt við Landbúnaðarháskóla Íslands, Ása Aradóttir prófessor, Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor og Ólafur Eggertsson dósent.

Verð: 44.000 kr. - Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið á háskólastigi.

Skógfræði hjá Endurmenntun LbhÍ