Fara beint í efnið

9. maí 2022

Undirafbrigði omikron BA.5 greinist á Íslandi

Frá því að omikron afbrigði SARS-CoV-2 kom fram hafa nokkur undirafbrigði náð yfirtökum hvert af öðru, a.m.k. á afmörkuðu svæði.

Sóttvarnalæknir - logo

Omikron bylgjan hófst hér vegna undirafbrigðis sem kallast BA.1 en hér á landi vék það mjög hratt fyrir undirafbrigði BA.2. BA.2 náði mestri útbreiðslu hér en BA.1 hvarf þó aldrei alveg, enda lengi ráðandi í ýmsum löndum og barst því hingað endurtekið. BA.3 afbrigði hefur einnig fundist hér. Lítill munur ef nokkur hefur verið á veikindum vegna þessara afbrigða, en þau sem ná yfirhöndinni eru meira smitandi en þau sem víkja. Nokkuð er um að einstaklingar sem hafa fengið t.d. BA.1 fái síðar BA.2 en veikindin við endursmit eru alla jafna vægari en fyrstu veikindin. Endursmit með nýju undirafbrigði virðast vera líklegri hjá óbólusettum en bólusettum einstaklingum.

Á undanförnum vikum hefur COVID-19 tilfellum aftur fjölgað í S-Afríku, þar sem omikron (BA.1) kom fyrst fram, og kom í ljós að þar hafa komið fram tvö ný undirafbrigði, BA.4 sem enn hefur ekki náð mikilli útbreiðslu um heiminn, og BA.5 sem hefur borist til flestra heimsálfa og hefur nú greinst á Íslandi, hjá fjórum einstaklingum sem veiktust af COVID-19 í lok apríl. Einstaklingarnir sem greindust með BA.5 hér á landi höfðu fæstir ferðast nýlega, því er ljóst að afbrigðið er sennilega komið víða út í samfélagið. Allir sem greinst hafa með afbrigðið voru fullbólusettir og enginn hafði áður greinst með COVID-19. Tilfellum COVID-19 hefur ekki fjölgað undanfarið og fáir eru á sjúkrahúsum, því er ekki að merkja að þetta afbrigði sé að valda útbreiddu endursmiti eða alvarlegum veikindum, enn sem komið er. Áfram verður fylgst með fjölda þeirra sem greinast og afbrigðum með raðgreiningum hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Ekki er ástæða til að grípa til sértækra aðgerða vegna þessa nýja afbrigðis á þessu stigi.

Áfram er mælt með að þeir sem hafa náð aldri til að fá bólusetningu (miðast við 5 ára afmælisdag) fái hana til að hindra alvarleg veikindi eins og kostur er. Einnig er mælt með bólusetningu þeirra sem hafa fengið COVID-19, til að draga úr líkum á endursmiti.

Sóttvarnalæknir