Fara beint í efnið

30. ágúst 2023

Umsókn um leyfi til selveiða til eigin nytja

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2024.

net hendur

Í Reglugerð um bann við selveiðum kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.

Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar  sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir til selveiða til eigin nytja fyrir árið 2024.

Umsóknarfrestur er til 15. október 2023.

Umsóknum skal skila á eyðublaði sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is eða með bréfpósti á heimilisfangið:  Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð 600 Akureyri.