Fara beint í efnið

19. ágúst 2022

Umsókn um leyfi til selveiða

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2023.

Fiskistofa logo

Fiskistofa vísar til reglugerðar nr. 1100/2019 um bann við selveiðum. Reglugerðin gildir um bann við veiði á öllum selategundum.

Í reglugerðinni kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.

Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar  sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.

Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2023.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2022.

Umsóknum skal skila á eyðublaði  sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is eða með bréfpósti á heimilisfangið:  Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð 600 Akureyri.