Fara beint í efnið

13. október 2026

Umferðarslys – ökumanns leitað

UPPFÆRT - ÖKUMAÐURINN GAF SIG FRAM Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á 8 ára dreng á reiðhjóli við Vefarastræti 11 í Mosfellsbæ í gærkvöld, eða klukkan 18.30. Við áreksturinn féll drengurinn af hjólinu og slasaðist, auk þess sem skemmdir urðu á hjólinu, en ökumaður bílsins ók rakleiðis af vettvangi án þess að skeyta um drenginn og líðan hans.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann, sem talið er að sé ung kona, um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hildur.run@lrh.is