Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðarslys í Grafningi

Lögreglunni á Selfossi barst kl. 18:55 í kvöld tilkynning um að rútubifreið með 68 skólabörnum af höfuðborgarsvæðinu hefði farið út af Nesjavallavegi í Grafningi. Þegar voru sendar tiltækar sjúkrabifreiðar á vettvang ásamt því að hópslysaviðbúnaður var virkjaður. Fljótlega kom í ljós að meiðsl voru minniháttar og einungis einn var fluttur með sjúkrabifreið af vettvangi. Hann kvartaði undan eymslum í baki. Fengnar voru aðrar rútur til að flytja skólakrakkana í áður fyrirhugaðan náttstað. Þau bera sig vel, ætla að halda hópinn, en fulltrúar Rauða krossins munu ræða við þau þegar þangað kemur.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi er á vettvangi ásamt bíltæknifræðingi vegna rannsóknar málsins.