Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. janúar 2026

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Dagana 21. desember til 3. janúar slösuðust tólf vegfarendur í ellefu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu, en alls var tilkynnt um 82 umferðaróhöpp í umdæminu á umræddu tímabili.

21.12 2025

Kl. 13.31 varð tveggja bíla árekstur á Hringbraut í Hafnarfirði, við Birkihvamm, en þeim var ekið úr gangstæðri átt. Annar ökumannanna er grunaður um fíkniefnaakstur og að hafa ekið á öfugum vegarhelmingi og var hann handtekinn á vettvangi. Tveir úr hinni bifreiðinni voru fluttir á slysadeild.

22.12 2025

Kl. 15.58 var bifreið ekið vestur Digranesveg í Kópavogi, að Meltröð, og aftan á kyrrstæða bifreið í stæði við vegkantinn. Ökumaðurinn, sem klukkutíma áður hafði lent í umferðaróhappi annars staðar, var fluttur í slysadeild. Í framhaldinu voru ökuréttindi hans afturkölluð.

23.12 2025

Kl. 10.24 var bifreið ekið á gangandi vegfaranda á gangbraut á Langholtsvegi í Reykjavík, við Álfheima. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild.

Kl. 16.22 var bifreið ekið á reiðhjól á gangbraut á Streng í Reykjavík. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

Kl. 19.38 var bifreið ekið á rafhlaupahjól á gangbraut í Hagasmára í Kópavogi, við Fífuhvammsveg. Ökumaður rafhlaupahjólsins var fluttur á slysadeild.

Kl. 23.56 var bifreið ekið á reiðhjól á Bústaðavegi í Reykjavík, á gatnamótum við Snorrabraut. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Hann er jafnframt grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

24.12 2025

Kl. 13.36 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Arnarnesvegi í Kópavogi, en við það hafnaði hún á ljósastaur og fór síðan áfram í gegnum grindverk uns bifreiðin stöðvaðist á húsvegg í Akralind. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.

Kl. 19.50 var bifreið ekið á kyrrstæða bifreið á stæði við Ástún í Kópavogi, en þar steig ökumaðurinn óvart á inngjöf í stað hemla. Hann var fluttur á slysadeild.

27.12 2025

Kl. 15.52 var bifreið ekið á reiðhjól á gangbraut við Kringluna í Reykjavík. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

30.12 2025

Kl. 18.37 varð þriggja bíla aftanákeyrsla á Norðurströnd á Seltjarnarnesi, en fremsta bifreiðin hafði stöðvað vegna hlaupara, sem hljóp yfir gangbraut. Við það ók aftasta bifreiðin á miðjubifreiðina, sem hafði líka stöðvað, sem kastaðist þá áfram á fremstu bifreiðina. Einn ökumannanna var fluttur á slysadeild.

1.1 2026

Kl. 4.33 varð þriggja bíla árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar í Reykjavík. Einn ökumannanna er talinn hafa ekið gegn rauðu ljósi og sömuleiðis að hafa verið undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn var fluttur á slysadeild.