20. janúar 2026
20. janúar 2026
Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu
Dagana 4. - 17. janúar slösuðust sautján vegfarendur í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu, en alls var tilkynnt um 75 umferðaróhöpp í umdæminu á umræddu tímabili.

5.1 2026
Kl. 9.01 varð þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi, austan Hólmsár, en talið er að einn ökumannanna hafi ekið yfir á öfugan vegarhelming með fyrrgreindum afleiðingum. Hinum bifreiðunum var ekið úr gagnstæðri átt. Tveir voru fluttir á slysadeild.
6.1 2026
Kl. 15.58 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Önnur bifreiðin var sjúkrabíll í forgangsakstri og var henni ekið gegn rauðu ljósi. Einn var fluttur á slysadeild.
Kl. 23.13 var bifreið ekið suður Sæbraut í Reykjavík, á móts við Bogfimisetrið, og á vegrið. Ökumaðurinn, sem var fluttur á slysadeild, sagðist hafa sofnað við aksturinn.
7.1 2026
Kl. 16.18 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Álftanesvegar og Garðavegar í Garðabæ. Öðrum bílnum var ekið norður Garðaveg og hinum norðvestur Álftanesveg þegar árekstur varð með þeim, en stöðvunarskylda er frá Garðavegi. Sex voru fluttir á slysadeild.
Kl. 19.47 hafnaði bifreið á ljósastaur við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði, nálægt Breiðhellutorgi. Í aðdragandanum hljóp köttur í veg fyrir bílinn og reyndi þá ökumaðurinn að beygja frá með fyrrgreindum afleiðingum. Hálka var á vettvangi. Þrír voru fluttir á slysadeild.
9.1 2026
Kl. 15.38 var bifreið ekið austur Flókagötu í Reykjavík og beygt suður Lönguhlíð á sama tíma og vegfarandi gekk yfir Lönguhlíð á gangbraut á grænu ljósi. Bifreiðin hafnaði á vegfarandanum og var hann fluttur á slysadeild.
Kl. 16.26 var bifreið ekið úr Skeifunni, á gatnamótum við Ármúla, og beygt norður Grensásveg á sama tíma og hjólreiðamaður fór þar um. Bifreiðin hafnaði á reiðhjólinu og var hjólreiðamaðurinn fluttur á slysadeild.
14.1 2026
Kl. 8.22 féll ökumaður af vespu á Hafravatnsvegi í Mosfellsbæ, sunnan Hólamýrar. Ökumaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm og er grunaður um ölvun, var fluttur á slysadeild.
15.1 2026
Kl. 12.41 varð árekstur bifreiðar og rafhlaupahjóls á Engjavegi í Reykjavík. Rafhlaupahjólinu var ekið eftir göngustíg og út á Engjaveg á sama tíma og bifreiðinni var ekið um veginn, en hjólið hafnaði í hlið bifreiðarinnar. Ökumaður rafhlaupahjólsins var fluttur á slysadeild.