18. október 2016
18. október 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðaróhöpp á Suðurnesjum
Umferðaróhapp varð á Grindavíkurvegi við Seltjörn í gærkvöld þegar tveir erlendir ferðamenn voru þar á ferðinni til að skoða norðurljósin. Ökumaðurinn ákvað að breyta um akstursstefnu og tók u – beygju á veginum. Ökumaður bifreiðar sem ekið var í sömu átt sá fyrrnefndu bifreiðina ekki fyrr en of seint og hafnaði bifreið hans í hlið hinnar. Mikil þoka og myrkur voru á vettvangi þegar óhappið varð. Flytja þurfti ökumann annarrar bifreiðarinnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en ferðamennirnir erlendu sluppu ómeiddir.
Þá var bifreið ekið á skilti á Sandgerðisvegi. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið, en engin slys urðu á fólki.