11. október 2019
11. október 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðaróhapp – ökumaðurinn fundinn
Fyrr í vikunni var lýst eftir ökumanni sem ók á fjórar, kyrrstæðar bifreiðar í Rjúpufelli í Reykjavík um síðustu helgi. Tekist hefur að hafa uppi á tjónvaldinum og telst málið upplýst. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð.
Frá vettvangi í Rjúpufelli.