23. mars 2018
23. mars 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðarlagabrot á Suðurnesjum
Sautján ára ökumaður mældist á 147 km hraða í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Fimm til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur.
Þá tók lögregla sex ökumenn úr umferð vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis eða fíkniefna við aksturinn.
Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af sjö bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.