Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. nóvember 2003

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit í 46 viku

Í nýliðinni viku hafði lögreglan í Reykjavík sérstaklega gætur á umferðarmálum í Bústaðahverfi. Fylgst var með hraðakstri þar sem nauðsynlegt reyndist að kæra 39 ökumenn. Þá var haft eftirlit með því að verktakar sem annast framkvæmdir á umferðarmannvirkjum á svæðinu merki framkvæmdir í samræmi við reglur.

Í þessari viku verður athygli lögreglu einkum beint að svæðinu við Laugardalinn, þar sem fylgst verður með hraðakstri, hvort notaðir sé farsímar án handfrjáls búnaðar og kannað með réttindi til akstur á flutningabifreiðum.