Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. ágúst 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit á Suðurnesjum

Tuttugu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 152 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þess ökumanns bíður 230 þúsund króna sekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þrír til viðbótar mældust á yfir 130 km hraða en aðrir sem kærðir voru óku heldur hægar.

Þá hafði lögregla afskipti af tveimur piltum sem óku greitt á mótorkrosshjólum um götur í umdæminu. Lögregla ræddi við aðstandendur þeirra svo og piltana og leiddi þeim fyrir sjónir að svona háttarlag væri ekki liðið.

Enn fremur var ungur ökumaður staðinn að því að spóla inni í hringtorgi með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði upp á torginu. Rætt var við piltinn sem og móður hans sem gert var viðvart um hegðun hans í umferðinni.