Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. desember 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit – 640 ökumenn stöðvaðir

Sex hundruð og fjörutíu ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Níu þeirra reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var enn fremur gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.