7. febrúar 2011
7. febrúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 60 ökumenn stöðvaðir
Sextíu ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar um helgina. Þrír þeirra reyndust ölvaðir við stýrið en hinir sömu eiga allir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu sömuleiðis neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.