Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. júlí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit – 500 ökumenn stöðvaðir

Fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Níu þeirra reyndust ölvaðir við stýrið og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Eftirlitið fór m.a. fram í miðborginni og í Víðidal, en þar var haldið velheppnað Landsmót hestamanna.