30. apríl 2018
30. apríl 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 450 ökumenn stöðvaðir
Fjögur hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Fimm þeirra reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þá var fimm ökumönnum til viðbótar gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.