Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. júní 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit – 350 ökumenn stöðvaðir

Þrjú hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir þeirra reyndust ölvaðir við stýrið og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.