25. júní 2013
25. júní 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 325 ökumenn stöðvaðir
Þrjú hundruð tuttugu og fimm ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.