22. september 2014
22. september 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 300 ökumenn stöðvaðir
Hátt í þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu neytt áfengis en voru undir refsimörkum.
Auk þessa voru níu aðrir ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í umdæminu um helgina.