7. febrúar 2012
7. febrúar 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 300 ökumenn stöðvaðir
Þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á hinn sami ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.