Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. nóvember 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit – 262 ökumenn stöðvaðir

Tvö hundruð sextíu og tveir ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir þeirra reyndust ölvaðir og/eða undir áhrifum fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var gert að hætta akstri en sá hafði neytt áfengis en var undir refsimörkum.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.