10. febrúar 2014
10. febrúar 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 255 ökumenn stöðvaðir
Tvö hundruð fimmtíu og fimm ökumenn voru stöðvaðir í borginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Við eftirlitið vakti það enn fremur athygli lögreglu að ljósabúnaði allmargra ökutækja var áfátt, en lögreglan hvetur ökumenn til að hafa hann alltaf í lagi.