Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. desember 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðareftirlit – 1700 ökumenn stöðvaðir

Rúmlega sautján hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Sex ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að hann hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum. Við umferðareftirlitið um helgina naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá embætti ríkislögreglustjóra.