Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. júní 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferð og lagningar við KR-völlinn til fyrirmyndar

Lögreglan fylgdist með umferð og lagningum ökutækja við KR völlinn í gærkvöldi á meðan leikur KR og FH í bikarkeppni karla fór fram. Var umferðin til mikillar fyrirmyndar og einungis var sett stöðubrotsgjald á eitt ökutæki sem lagt hafði verið upp á grasi. Á meðfylgjandi myndum sem lögreglan tók má sjá að lagningar ökutækja voru til fyrirmyndar.