Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. janúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umfangsmikil rannsóknaraðgerð vegna innbrota í Árnessýslu

Lögreglan á Selfossi handtók Í gær 16 aðila í tengslum við rannsókn á innbrotum og þjófnuðum í gróðurhús og sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Aðgerðin beindist einnig að meintum fíkniefnabrotum. Við húsleitirnar fundust á á öllum stöðunum fíkniefni eða áhöld sem og eitthvað af þýfi. Þetta var mjög umfangsmikil aðgerð sem lögreglan á Hvolsvelli aðstoðaði við.

Nú í morguns/árið dvelja þrír í fangageymslum lögreglunnar á Selfossi. Þeir munu verða yfirheyrðir fyrir hádegi. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir í það minnsta einum þeirra.

Í tengslum við þessa rannsóknir voru tveir ökumenn staðnir að því að hafa ekið bifreið undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi.

Megin þungi rannsóknarinnar snýr að því að upplýsa þjófnaði á þeim fjölda gróðurhúsalampa úr gróðurhúsum síðastliðna tvo mánuði. Rannsóknin er á því stigi að ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo komnu máli.