11. mars 2024
11. mars 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Umfangsmikil kannabisræktun upprætt á Suðurlandi.
Lögreglan á Suðurlandi hefur nú til rannsóknar all umfangsmikla framleiðslu á kannabisefnum í gróðurhúsi í Árnessýslu. Við húsleit lögreglu í lok febrúar sl. var hald lagt á nokkur hundruð kannabisplöntur í ræktun auk búnaðar til ræktunar. Auk þess voru haldlögð á annan tug kílóa af kannabisefnum. Enginn er í haldi vegna málsins en nokkrir einstaklingar hafa réttarstöðu grunaðra við rannsóknina sem miðar vel.