Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. janúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umfangsmikil kannabisræktun á Álftanesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi á Álftanesi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 200 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Lögreglan haldlagði tæplega 200 kannabisplöntur.