30. september 2026
30. september 2026
Um árlega inflúensubólusetningu – upplýsingar fyrir almenning
Tvenns konar bóluefni verður notað. Annars vegar nefúðabóluefnið Fluenz, ætlað skilgreindum hópum barna, hins vegar hefðbundið stungulyf, Influvac. Allar ákvarðanir um framkvæmd og fyrirkomulag bólusetninga eru á höndum sóttvarnalæknis

Árleg bólusetning gegn inflúensu hefst innan skamms. Tvenns konar bóluefni hefur verið keypt til landsins og verður tilbúið til afhendingar á næstu tveimur vikum. Fram kemur í tilkynningu frá sóttvarnalækni að eins og undanfarin ár verður dreifingu forgangsraðað til hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnana þar sem forgangshópar verða bólusettir fyrstu vikurnar. Allar ákvarðanir um framkvæmd og fyrirkomulag bólusetninga er á höndum sóttvarnalæknis.
Bóluefnin tvö
Veturinn 2026-2027 verður notast við tvenns konar bóluefni. Annars vegar nefúðabóluefnið Fluenz, hins vegar stungulyfið Influvac. Bæði bóluefnin eru þrígild, beinast gegn inflúensu A (H1N1 og H3N2 stofnar) og inflúensu B (Victoria stofni). Bæði bóluefnin geta innihaldið eggjaprótín og ætti ekki að nota fyrir einstaklinga með lífshættulegt eggjaofnæmi.
Fylgiseðillinn inniheldur upplýsingar ætlaðar notendum
Upplýsingar ætlaðar notendum er að finna í fylgiseðli bóluefnanna sem eru aðgengilegir á lyf.is. Lyfjanotendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um bóluefnin í fylgiseðlinum, s.s. upplýsingar um þekktar aukaverkanir. Jafnframt er bent á að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að fylgi lyfjanotkun til Lyfjastofnunar, þetta á einnig við um bóluefni.
Fluenz er lifandi veiklað nefúðabóluefni ætlað fyrir öll börn 2-4 ára og 5-17 ára börn með áhættuþætti þar sem ekki koma til frábendingar. Keyptir hafa verið 15.000 skammtar af bóluefninu.
Veirustofnar í Fluenz
B/Austria/1359417/2021 - like strain (B/Austria/1359417/2021, MEDI 355292)
Influenza A virus, subtype H3N2, strain A/Croatia/10136RV/2023-like strain (A/Perth/722/2024, MEDI 392611), Live
Influenza virus A/Victoria/4897/2022 (H1N1)pdm09 - like strain (A/Norway/31694/2022, MEDI 369815)
Influvac er hefðbundið óvirkjað inflúensubóluefni sem hæfir börnum frá 6 mánaða aldri og fullorðnum. Keyptir hafa verið 90.000 skammtar af bóluefninu.
Veirustofnar í Influvac
Influenza B virus, strain B/Tokyo/EIS13-175/2025-like strain (B/Tokyo/EIS13-175/2025, wild type), Inactivated
Influenza A virus, subtype H1N1, strain A/Missouri/11/2025 IVR-279 (A/Missouri/11/2025 pdm09-like virus), Inactivated
Influenza A virus, subtype H3N2, strain A/Darwin/1454/2025-like strain (A/Michigan/105/2025, SAN-049A), Inactivated
Fullt heiti | |
ATC flokkur | J07BB03 |
Innihaldsefni | Inflúensuveira (veikluð) |
Lyfjaform | Nefúði, dreifa |
Íkomuleið | Nef |
Aldurshópur | 2-17 ára |
Fullt heiti | |
ATC flokkur | J07BB02 |
Innihaldsefni | Inflúensuveira, hreinsaðir mótefnavakar |
Lyfjaform | Stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu |
Íkomuleið | Til notkunar í vöðva |
Aldurshópur | Frá 6 mánaða aldri |
Forgangshópar
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar að njóti forgangs við inflúensubólusetningu:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Börn undir 5 ára aldri, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi konur.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu, nánar í
Þess er vænst að bólusetningar forgangshópa geti hafist um allt land upp úr miðjum október en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það væntanlega í nóvember, þar með talið aðilar sem sinna bólusetningum á vinnustöðum.