Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. júlí 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tveir teknir fyrir ölvunarakstur

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Karlmaður á sjötugsaldri var stöðvaður fyrir þessar sakir í Hafnarfirði og 19 ára piltur var tekinn fyrir sama brot í miðborginni.

Liðlega þrítug kona var stöðvuð við akstur í austurborginni en hún var undir áhrifum fíkinefna. Þá var 17 ára piltur tekinn við akstur í Grafarvogi en sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Kauði hefur áður verið stöðvaður við þessa iðju.