Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. apríl 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tveir piltar handteknir fyrir innbrot á Selfossi

Athugull vegfarandi sá til tveggja manna koma út um glugga á skemmtistaðnum Hvítahúsinu á Selfossi rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi og fara frá staðnum á bifreið. Lögreglan fann bifreiðina í Ölfusi stuttu síðar. Í bifreiðinni voru tveir 17 ára piltar af höfuðborgarsvæðinu. Þeir voru handteknir og færðir í lögreglustöð til yfirheyrslu. Þeir viðurkenndu að hafa brotist inn í Hvítahúsið í gærkvöldi og einnig í eitt skipti fyrr í vetur. Erindi þeirra austur á Selfoss að þessu sinni var að selja úlpu sem þeir höfðu tekið ófrjálsri hendi í heimahúsi í Kópavogi fyrir um tveimur vikum síðan. Vegna aldurs piltanna var fulltrúi barnaverndar viðstaddur yfirheyrslu og foreldrar upplýstir um stöðu máls. Piltarnir voru samstarfsfúsir við að upplýsa málin.