Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. nóvember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tveir í haldi lögreglu

Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í umdæminu í gærkvöld og nótt og húsleitir framkvæmdar í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna, líkamsárás og hótunum. Mennirnir voru handteknir á sitthvorum staðnum og var nokkur viðbúnaður vegna þessa. Við aðgerðirnar naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Lögreglan áformar að senda frá sér frekari upplýsingar um málið þegar rannsókn þess vindur fram, mögulega síðar í dag.