Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. júní 2025

Tveir handteknir með 12 kg af kókaíni á Keflavíkurflugvelli

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur nú að rannsókn máls, í samvinnu við tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli, er varðar innflutning á 12 kg kókaíni.

Þann 23. maí síðastliðinn stöðvaði tollgæslan ferð tveggja einstaklinga í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem hvor um sig reyndust vera með 6 kílógrömm af kókaíni í farangri sínum.

Um ræðir tvo karlmenn sem nú sæta gæsluvarðhaldi og komu frá Frakklandi. Þeir eru taldir tengjast og vinnur lögreglan að því að upplýsa um þátt þeirra og annara sem kunna að tengjast málinu.

Lögreglan á Suðurnesjum merkir verulega aukningu í innflutningi fíkniefna til landsins á milli ára. Á öllu árinu 2024 lagði lögreglan á Suðunesjum hald á 35,5 kg. af kókaíni en það sem af er ári 2025 hefur verið lagt hald á 42,5 af kókaíni.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.