Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. ágúst 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tveggja vikna gæsluvarðhald

Karlmaður á fertugsaldri var í fyrradag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum. Maðurinn er grunaður um að hafa brotið gegn tveimur konum í aðskildum málum á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.