Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. september 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tvær ræktanir undir sama þaki

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á stúfana í Kópavogi í fyrradag eftir að hafa fengið ábendingar um megna kannabislykt sem virtist koma frá tilteknu fjölbýlishúsi. Eftir smá rannsóknarvinnu ákváðu lögreglumennirnir að spyrjast fyrir í einni íbúð hússins en henni fylgdi bílskúr sem talinn var líklegur vettvangur ræktunar. Eigandi bílskúrsins, maður á fertugsaldri, kannaðist ekki við neitt en gat hins vegar ekki sýnt lögreglumönnum bílskúrinn þar sem hann hafði orðið fyrir því óláni að týna bílskúrshurðaopnaranum. Til að villa um fyrir lögreglumönnum gat hann þess hins vegar að annar íbúi í húsinu, maður á þrítugsaldri, væri miklu líklegri en hann til að vera að rækta efni. Eftir nokkuð þóf gaf maðurinn sig þó og opnaði bílskúrinn. Í fyrstu var ekki annað að sjá en að um venjulegan bílskúr væri að ræða. Annað kom hins vegar á daginn því lögreglumennirnir á vettvangi höfðu mikla reynslu af slíkum málum og sáu strax að ekki var allt með felldu. Þeir höfðu rétt fyrir sér því eftir nokkra leit fannst vel ræktun með 35 plöntum.