Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. mars 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tvær lendingar með veika farþega

Flugvél frá Lufthansa varð að lenda á Keflavíkurflugvelli um helgina vegna veikinda farþega. Hún var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Vancouver í Kanada þegar veikindin komu upp. Farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Tveim dögum áður hafði lögreglunni á Suðurnesjum verið tilkynnt um lendingu flugvélar frá Air Canada af sömu ástæðum. Sú vél var á leiðinni frá Heathrow til Toronto þegar farþeginn veiktist. Höfðu læknar um borð gefið honum súrefni og vökva í æð. Hann var einnig fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.